það gleymist eitt ..

Ef það kemur ekki gjalþrotabeiðni frá kröfuhafa er gert árangurslaust fjárnám og þá er hægt að elta fólk endalaust..... Þess vegna er það hagur kröfuhafa að fara ekki fram á gjaldþrot og halda frekar við skuldinni.

Þetta tel ég vera ástæðuna fyrir fáum gjaldþrotabeiðnum.

 


mbl.is Gjaldþrot „og þú ert laus allra mála“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Krafa fyrnist engu að síður, ef kröfuhafi viðhedur ekki sinni kröfu og þarf þá að stefna einstaklingi til að rjúfa fyrningu.

Haraldur Haraldsson 22.10.2011 kl. 16:31

2 Smámynd: maggi220

Gerir maður sig ekki bara gjaldþrota sjálfur, mig minnir að það kosti í kring um 250 þús

maggi220, 22.10.2011 kl. 19:49

3 identicon

Möguleikinn var samt nógu augljós til að freistingin að fara í „taktískt“ gjaldþrot var lítil.

„Þetta er í reynd svo þröngur rammi að nánast er útilokað að nokkur dómari myndi fallast á slíka kröfu. Það er líka tekið fram að þetta eigi eingöngu við í sérstökum undantekningatilvikum,“ segir dómari sem ekki vill láta nafns síns getið.

 En með því að fara í gjaldþrot og hætta að borga losni menn alveg við þær! Lög af þessu tagi hafi ekki verið sett annars staðar á Norðurlöndunum og ekki heldur í Bandaríkjunum.

 Allsherjarnefnd Alþingis orðaði efasemdir sínar 2009, sagði að „eina þýðing slíkrar sérreglu, í ljósi nýja greiðsluaðlögunarúrræðisins, yrði að umbuna þeim þrotamönnum sem ekki væru tilbúnir að axla ábyrgð á eigin gerðum og torvelda þolendum í bótamálum að halda uppi kröfum gagnvart þrotamanni“.

Jamm ...ég ætla ekki að nota rétta orðið yfir Kristján Jónsson "blaðamann" en ekki er það fallegt.

Taktískt gjaldþrot er ekki til.

Eðlilega kemur dómarinn ekki fram undir nafni því aðrir dómarar hafa ansi mikið aðra skoðun. Ég spurði.

Gott að sjá að Kristján þykist kunna gjaldþrotalögin í öllu ríkjum Bandaríkjanna ... spurning hvort hann hafi í raun hugmynd um þau yfirleitt.

Jahá þolendur bótamála eiga að hafa rétt á skuldarþrælum ? Svona í ljósi þess að hér lýtur Gunnlaugur faðir Sigmundar á sig sem þolenda ?

Umbuna þeim sem geta ekki borgað skuldirnar sínar með því að fella þær niður ?

Hafa þessi fífl á þingi aldrei heyrt talað um sýndarlögaðilana sem notaðir eru twist og bast ?

Auk þess er ekki vitað hvort bankarnir setja einstaklinga á sérstakan svartan lista vegna persónulegra gjaldþrota ???

Er Kristján eini maðurinn á landinu sem veit það ekki ?

Þetta er ekki fréttskýring ... þetta er fréttaáróður.

Hlynur Jörundsson 22.10.2011 kl. 20:12

4 Smámynd: Guðmundur Pétursson

Gjaldþrota Mokkapakkið að setja sig á háan hest. snork, snork.

Því fyrr sem almenningur áttar sig á því að þingmenn eru illa gefnir hálfvitar og aumingjar upp til hópa, því betra.

Jóhanna og Steingrímur eru bestu dæmin, en þau eru alls ekki þau verstu hvað það varðar

Guðmundur Pétursson, 23.10.2011 kl. 11:07

5 Smámynd: Praise

Fæstir vilja verða gjaldþrota og missa allar eigur sínar.Lenda á svarta listanum og geta ekki tekið lán ef eittvað kemur uppá ,fáránlegt hjá mogganum að setja þetta svona upp. 

Haraldur ,já krafan fyrnist ef henni er ekki haldið við en það eru fyrirtæki sem sjá um það að halda svona kröfum við endalaust.

 Já Maggi 220 það er hægt að fara fram á gjaldþrot fyrir þennan pening en þeir sem hafa misst allt og líka jafnvel vinnuna hafa þetta sjaldnast á milli handana.

Fjármálastofnanir fara frekar fram á árángurslaust fjárnám hjá fólki en gjaldþrot til að geta haldið kröfunum við og ég veit um dæmi þar sem það er jafnvel notað sem hótun " að halda kröfunni við endalaust ef ekki er hægt að semja ásættanlega"

(En jú auðvitað geta svokallaðir útrásavíkingar og fjárglæpamenn með enga siðferðiskennd nýtt sér þetta "taktískt" En það væri kanski hægt að setja einhverja sér lagaklausu um þá ...)

Ég held að það sé mjög gott að sem flestir hafi tækifæri á að byrja upp á nýtt eftir hrunið og það skili sér vel til samfélagsins.

Praise, 24.10.2011 kl. 15:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Myrra777

Höfundur

Praise
Praise
Filip. 4.13 Allt megna ég fyrir hjálp Hans sem mig styrkan gjörir

Færsluflokkar

Maí 2012
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • ...56_491674_n
  • ...651_1021665
  • ...651_1021664
  • ...mage_515651
  • ...img_7204

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 2824

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband